Fyrstu niðurstöður rannsókna á beinaleifunum úr Burstarfelli í Vopnafirði birtust í stuttri grein í Náttúrufræðingnum árið 1990, 59. árg., bls.189-195. Þar var því haldið fram að um væri að ræða bein úr einhverju hjartardýri eða dýri af hjartarætt, Cervidae.
Stærsta beinið er að því er virðist hluti úr hægra h...
Landnám Íslands var síðasti áfangi í útbreiðslu mannsins í Evrópu. Ríkar heimildir eru til um þetta landnám, og það má segja að meira sé vitað um tilurð íslensku þjóðarinnar en um tilurð nokkurrar annarrar þjóðar í Evrópu (og jafnvel í heiminum).
Almennt er talið að landnám hafi átt sér stað á tímabilinu 870-93...
Enski fornleifafræðingurinn William Matthew Flinders Petrie var leiðandi í rannsóknum á fornöld Egyptalands og Palestínu í lok 19. aldar og í byrjun þeirrar 20. en er best þekktur nú á dögum sem frumkvöðull í beitingu vísindalegra vinnubragða við uppgröft og greiningu forngripa.
Flinders Petrie fæddist í Kent á...
Árný Erla Sveinbjörnsdóttir er jarðfræðingur, jarðefnafræðingur og vísindamaður hjá Jarðvísindastofnun Háskólans. Helstu rannsóknasvið hennar eru ískjarnarannsóknir, grunnvatnsrannsóknir og aldursgreiningar.
Rannsóknir Árnýjar á sýnum úr ískjörnum frá Grænlandsjökli hafa varpað ljósi á veðurfar á jörðinni til f...
Svarið við spurningunni veltur á túlkun manna á fyrsta skeiði kristni í landinu sem og í hvaða merkingu orðið kirkja er notað. Ef við notum hugtakið kirkja um byggingu sem einkum er notuð til helgihalds burtséð frá stærð, gerð, eignarhaldi, vígslu og kirkjuréttarlegri stöðu má geta sér þess til að „kirkjur“ hafi r...
Á heimasíðu Vegagerðarinnar er að finna ýmsan fróðleik og tölulegar upplýsingar um vegakerfið. Þar er meðal annars að finna töflu með upplýsingum um hæð vega yfir sjó. Samkvæmt henni eru fimm hæstu fjallvegir landsins eftirtaldir:
VegnúmerVeg- og/eða staðarheitiHæð yfir sjó (m)
F821Sprengisandur, Nýjabæjarafrét...
Vísindavefurinn hefur fengið margar spurningar um sjó og eimingu og þeim er öllum svarað hér:
Hvernig getur maður búið til ferskt vatn út sjó?
Hvers vegna er ekki hægt að breyta sjó í drykkjarhæft ástand (hreint vatn)?
Hvernig er hægt að hreinsa sjó og gera að ferskvatni?
Ef ég er staddur á fleka á mið...
Nei það geta ekki allir fuglar synt á vatni.
Sumir fuglar eru vel aðlagaðir sundi á vatni, svo sem endur og mávar, enda hafa þessir fuglar sundfit. Fuglar sem ekki eru aðlagaðir sundi lenda hins vegar í erfiðleikum í vatni. Ef til dæmis örn eða fálki lentu á vatni mundu þeir að vísu fljóta um og sjálfsagt reyna...
Líta má á hugtakið miðpunktur á marga vegu. Landfræðilega væri réttast að segja að miðpunktur Íslands sé staðsettur þar sem fjarlægð frá sjó er mest til allra átta. Sá punktur er rétt sunnan Hofsjökuls á um það bil 18,9°V og 64,6°N, eins og sjá má á myndinni og er í 118,3 km fjarlægð frá sjó.
Þetta kort sýnir...
Meðan skipið flýtur ryður það frá sér sjó upp að sjávarlínunni á skrokknum eða upp að fleti sem afmarkast af sjávarborðinu á skipinu. Þegar skipið sígur í sjónum verður þetta rúmmál augljóslega meira og mest verður það þegar skipið er allt komið á kaf í sjó.
Massi sjávarins sem fljótandi skip ryður frá sér er...
Fræg er sagan sem fornmannfræðingar hafa dregið upp af „frummanni“ þeim sem kallast Australopithecus afarensis og lifði fyrir 3,6 milljónum ára í Austur-Afríku, þar sem mannkynið á uppruna sinn. Meðal skýrustu mannvistarleifa sem fundist hafa frá þessu tímaskeiði í frumsögu mannkyns eru spor þriggja tvífætlinga se...
Spyrjandi setti spurningu sína fram sem hér segir:Hvernig breytir maður einingunni ml/l í míkrómól á kg fyrir súrefnishlutfall í sjó, t.d. 8,223 ml/l miðað við hitastig 7,81°C og seltu 30,284 á 0 m dýpi?Það er því miður ekki á verksviði Vísindavefsins almennt að svara svona spurningum sem flokkast undir tæknilega ...
Við sem búum á eyju í miðju Atlantshafinu hugsum sjaldnast um hversu miklu máli það getur skipt að eiga landamæri að sjó, fyrir okkur er það eitthvað svo sjálfsagt. Hins vegar er tæplega fjórðungur ríkja heims í þeirri stöðu að eiga ekki landamæri að sjó og kallast þau landlukt (e. landlocked).
Í dag eru landlu...
Í fullri lengd hljóðaði spurningin svona: Spurning mín er: Krabbar sem lifa í sjó og nærast á botninum í sínum heimkynnum veiðast stundum af slysni og koma úr sjó með öðrum afla. Sumar tegundir geta lifað jafnvel á 350 metra dýpi en aðrar tegundir krabba þrífast á þurru landi. Hvernig fer öndun þeirra fram? Hverni...
Í heild hljóðaði spurningin svona:
Góðan dag. Við erum krakkar í 4. bekk í Hraunvallaskóla. Við höfum verið í vísindasmiðju og upp kom ein spurning sem okkur langar að fá svar við. Spurning okkar er þessi; verða fiskar þyrstir? Með bestu kveðju, Vísindahópurinn í 4. bekk.
Þurrlendisdýr lifa í stöðugri baráttu ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!